Ökugerði og Go-kart

Er nú búin að vera latur að blogga en ákvað að skella einni fréttatilkynningu sem við erum að senda frá okkur. Hún hljóðar svo:

Fréttatilkynning.

Stjórn byggðastofnunar ákvað á fundi sínum 27 apríl síðastliðin að lána allt að 200 milljónum til uppbyggingar á fyrsta áfanga Iceland Motopark svæðisins í Reykjanesbæ.Um er að ræða langtímafjármögnun á þessum fyrsta áfanga verkefnisins og gert er ráð fyrir að svæðið verði fullbyggt í lok ársins samtals um 7 hektarar.Í þessum fyrsta áfanga motoparksins verður meðal annars byggð Go-kart braut á heimsmælikvarða ásamt þjónustubyggingu sem hýsir m.a. kennslustofur, aðstöðu fyrir ökukennara, veitingasölu ofl.  Hönnun brautarinnar hefur nú þegar hlotið samþykki CIK-FIA, alþjóðasambands akstursíþrótta. Ökugerði með tilheyrandi brautum til þjálfunar aksturs við mismunandi aðstæður í samræmi við reglugerð sem tekur gildi frá og með 1. janúar 2008 og kveður á um að allir sem taka ökupróf verði að hafa hlotið viðhlýtandi kennslu í ökugerði..Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar framkvæmdarstjóra Iceland motopark er þetta mikilvægur áfangi í langtímafjármögnun þessa hluta svæðisins og kemur til með að hafa mjög jákvæð áhrif á heildarverkefnið, einnig er þetta mikil viðurkenning á verkefninu og hvernig það hefur verið unnið. Byggðastofnun hefur með þessu skrefi skapað grunn að sköpun umtalsverða starfa í Reykjanesbæ, en gert er ráð fyrir að innan Iceland motopark verði allt að 300 ný störf þegar heildar uppbyggingu svæðisins er lokið.

Við erum mjög stolt af því að Byggðastofnun skildi taka þessa ákvörðun því þetta er mikil viðurkenning á því hversu vel þetta verkefni hefur verið unnið og vandað til verka.

Svo fara að koma stærri fréttir fljótlega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Þór Bragason

Frábært, til hamingju með þennan áfanga.

Birgir Þór Bragason, 3.5.2007 kl. 07:34

2 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Til hamingju með þetta Villi.

Eggert Hjelm Herbertsson, 3.5.2007 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband