Framkvæmdir ganga vel

Framkvæmdir við Motoparkið ganga vel þessa dagana búið er að færa til nokkra tugi þúsunda rúmmetra af efni og sýnist okkur að við getum opnað í Júni eins og stefnt er að. news10307Einnig er unnið að því að vera klárir með ökugerðið 1. Janúar 2008 og uppfylla þar með reglugerð þar af lútandi.

Við þurftum að breyta hæðarlegu brautarinnar dálítið og þá kom greinilega í ljós sá gríðarlegi styrkur sem alþjóðlega hönnunarteymi býr yfir. við ákváðum kl 9 að kveldi að breyta hæð og var það gert í samráði við okkar menn í UK sem síðan sendu nýja hæð til verkfræðinga okkar í Abu Dhabi sem unnu síðan um nóttina (dagur hjá þeim) og nýjar teikningar voru komnar um morguninn.

Tæknimennirnir okkar hjá Jarðvélum hafa síðan staðið sig eins og hetjur við að setja út punktana og í raun mjög gaman hvernig allir geta unnið vel saman þó dreifðir séu um víðan heim.

icelandmotopark_kartcircuitsmall 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband